Upptökur á YouTube af tónleikum með Björk Guðmundsdóttur þar sem ég spila. Þær eru frá tónleikaferðalögum á árunum 2007-2008, og 2013.
Upptökur á YouTube af tónleikum með Björk Guðmundsdóttur þar sem ég spila. Þær eru frá tónleikaferðalögum á árunum 2007-2008, og 2013.
I was wondering if I could get the lyrics of “Hjá lygnri …” I love the song and would like to know what I’m singing! I’m currently learning Icelandic and love it so much.Björk is my inspiration .
Takk fyrir!
Looking forward to hearings from you!
Mariusz Czochrowski
Hjá lygnri móðu
Hjá lygnri móðu í geislaglóð
við græna kofann,
hann sá hvar hún stóð hið fríða fljóð
fráhnept að ofan.
Mitt er þitt og hjá mér áttu heima,
víst skaltu öllum veraldarsorgum gleyma.
Á hann leit hún æskuteitu
auga forðum,
það var kvöld í sveit og hún kvaddi hann veit ég
kærleiksorðum.
Mitt er þitt og hjá mér áttu heima,
víst skaltu öllum veraldarsorgum gleyma.
Innst í hjarta augað bjarta
og orðið góða
hann geymir sem skart uns grafarhúm svart
mun gestum bjóða.
Mitt er þitt og hjá mér áttu heima,
víst skaltu öllum veraldarsorgum gleyma.
Halldór Kiljan Laxness
Kvæðakver. Þriðja útgáfa 1956
(Helgafell)