Þær eru ekki vitlausar þessar nunnur

Í meira en þrjátíu ár söfnuðu vísindamenn nunnuheilum. Niðurstaðan? Læknisfræðin veit í raun sáralítið um hvernig vitundin virkar. Í nýlegu myndbandi er rifjuð upp fræg langtímarannsókn á nunnum (svokölluð Nun Study), sem hófst árið 1986 undir stjórn Dr. David Snowdon. Í rannsókninni var fylgst með um 700 nunnum úr reglunni School Sisters of Notre Dame yfir tæplega 30 ára skeið. […]

Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum **1/2

Sinfóníuhljómsveit Íslands á Myrkum músíkdögum 29. janúar í Eldborg í Hörpu Nú er sá tími ársins runninn upp aftur. Sá tími þegar íslenska þjóðin, sem þegar er á barmi taugaáfalls vegna D-vítamínskorts og myrkurs sem virðist engan enda ætla að taka, ákveður að það sé ekki nóg að líða illa. Nei, hún borgar fyrir að […]