Magnaðir hápunktar framkölluðu gæsahúð

4 stjörnur Verk eftir Strauss og Tsjajkovskí. Sinfóníuhljómsveit Íslands lék. Einsöngvari: Þóra Einarsdóttir. Stjórnandi: Petri Sakari. Eldborg í Hörpu fimmtudaginn 20. september Þegar skákeinvígi aldarinnar stóð yfir hér olli Bobby Fisher mikilli hneykslun með því að hella úr kókflösku yfir skyr og borða með bestu lyst. Þar blandaðist saman eitt helsta tákn íslenskrar menningar og […]

Andagift og andleysi í Kammermúsíkklúbbnum

3 og hálf stjarna Verk eftir Weiner, Kodály og Elgar. Flytjendur: Anton Miller, Guðný Guðmundsdóttir, Rita Porfiris, Bryndís Halla Gylfadóttir og Bjarni Frímann Bjarnason. Norðurljós í Hörpu sunnudaginn 16. september Í kvikmyndinni Close Encounters of the Third Kind, sem fjallar um undanfara þess að geimverur sækja okkur heim, kemur ungverska tónskáldið Zoltán Kodály við sögu. […]

Eins og langt rifrildi

2 og hálf stjarna Verk  eftir Luciano Berio og Egil Gunnarsson í flutningi Stirni Ensemble. Norðurljós í Hörpu sunnudaginn 9. september Ég sá nýlega á YouTube viðtal við manninn sem getur talað hraðast í heimi. Hann fór með allan textann úr laginu Bad eftir Michael Jackson á nokkrum sekúndum en var samt skýrmæltur Það var […]

Var Bolero fyrsta einkenni heilasjúkdóms?

3 stjörnur Verk eftir Berlioz, Ravel og Bartók. Sinfóníuhljómsveit Ísland lék. Einleikari: Renaud Capuçon. Stjórnandi: Yan Pascal Tortelier. Eldborg í Hörpu fimmtudaginn 6. september Ég hef heyrt þá kenningu að Bolero eftir Ravel, sem var á dagskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands á fimmtudagskvöldið, hafi mögulega verið afleiðing heilabilunar. Fyrir þá sem ekki vita gerist ekkert í verkinu, […]

Spáð í vetrardagskrá Sinfóníunnar

Dag einn árið 1876 komu saman nokkrir blásturshljóðfæraleikarar í Reykjavík og héldu tónleika undir stjórn Helga Helgasonar tónskálds. Skömmu síðar birtist gagnrýni í Þjóðólfi og þar var sagt frá því að tónlistarmennirnir hefðu sungið inn í hljóðfærin sín. Gagnrýnandanum fannst það óskaplega spaugilegt og taldi að svona píp ætti varla framtíð fyrir sér. Annað kom […]