Endursýning Átta radda

RÚV hefur nýlega hafið endursýningu á sjónvarpsþáttaröð sem ég stjórnaði, Átta röddum. Þar heimsæki ég átta íslenska söngvara og spjalla við þá um heima og geima. Þættirnir voru frumsýndir 2011. Stjórn upptöku: Jón Egill Bergþórsson. Fyrsti þátturinn fjallar um Diddú sem byrjaði söngferilinn í Spilverki þjóðanna. Hún færði sig yfir í óperusöng tiltölulega seint en […]

Dómar sem ég hef fengið fyrir Til hamingju með að vera mannleg

“Tónlist Jónas­ar Sen var mjög fal­leg, ekki síst pí­anókonsert­inn sem Sig­ríður Soffía dansaði við í lok fyrri hluta sýn­ing­ar­inn­ar. Það atriði var áhrifa­mikið.” Sesselja Kristjánsdóttir, Morgunblaðið “Ein sena stendur þó uppúr í verkinu og það er síðasta senan fyrir hlé þar sem tónskáld verksins Jónas Sen, sem situr fremst á sviðinu við píanóið, flytur Píanókonsert […]

Tónlistin í Til hamingju með að vera mannleg

Ég er spurður töluvert um tónlistina í Til hamingju með að vera mannleg sem var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu á miðvikudaginn. Öll tónlistin í sýningunni er eftir mig, fyrir utan Misty eftir Errol Garner og White Christmas eftir Irving Berlin, sem eru leikin á píanó í lifandi flutningi og brot úr Monalisa (Lojay, Sarz, Chris Brown), […]

Ó þú fagri Schubert

Stolen Schubert. Geisladiskur Ásdís Valdimarsdóttir leikur á víólu tónlist eftir Schubert. Með henni spilar Edward Janning á píanó og Katharine Dain syngur. Niðurstaða: Einkar vönduð og sannfærandi túlkun á tónlist eftir Schubert. Franz Schubert var yfirþyrmdur þegar hann hitti átrúnaðargoð sitt, Beethoven. Schubert dáði hann mjög og flúði því æpandi af vettvangi, eða svo er […]

Spurt um merkingu tónlistarinnar

Geisladiskur Borgar Magnason: Come Closer. Niðurstaða: Mjög falleg tónlist. Borgar Magnason er kontrabassaleikari og hljóðfærið hans er í aðalhlutverki á nýjum geisladiski sem kom á streymisveitur fyrir skemmstu. Útgáfan inniheldur sex verk. Þrátt fyrir að Borgar hafi hlotið klassíska menntun er tónlist hans ekki „akademísk“ – ef svo má að orði komast. Framvindan, sem er […]

Madama Butterfly er full af töfrum

Niðurstaða: Einfaldlega frábær sýning. Giacomo Puccini: Madama Butterfly Íslenska óperan. Hljómsveitarstjóri: Levente Török. Leikstjórn: Michiel Dijkema. Aðalhlutverk: Hye-Youn Lee, Arnheiður Eiríksdóttir, Egill Árni Pálsson og Hrólfur Sæmundsson. Önnur hlutverk: Snorri Wium, Viðar Gunnarsson, Unnsteinn Árnason, Jón Svavar Jósefsson, Karin Torbjörnsdóttir, Jón Ingi Stefánsson, Sigurlaug Knudsen, Hulda D. Proppé, Bernadett Hegyi, Tómas Ingi Harðarson, Arnar Dan, […]

Fríðari engan finna má

Niðurstaða: Yfirleitt mjög skemmtilegir tónleikar. Ár íslenska einsöngslagsins. Lög eftir mismunandi íslenska höfunda. Fram komu Egill Árni Pálsson, Hanna Dóra Sturludóttir, Harpa Ósk Björnsdóttir, Unnsteinn Árnason, Hrönn Þráinsdóttir og Matthildur Anna Gísladóttir. Salurinn í Kópavogi sunnudagur 19. febrúar Bindindishreyfingin IOGT (International Organization of Good Templars) var í mínu ungdæmi uppnefnd „Íslenskir ofdrykkjumenn og gamlir tugthúslimir“. […]

Búktalandi óperusöngvari og farsakennd atburðarás

Niðurstaða: Drepfyndin ópera. Donizetti: Don Pasquale. Sviðslistahópurinn Óður setti upp. Leikstjórn: Tómas Helgi Baldursson. Tónlistarstjórn og píanóleikur: Sigurður Helgi. Aðalhlutverk: Ragnar Pétur Jóhannsson, Áslákur Ingvarsson, Sólveig Sigurðardóttir og Þórhallur Auður Helgason. Þjóðleikhúskjallarinn laugardagur 11. febrúar Síðast þegar ég vissi var hraðmæltasti maður heims John Moschitta yngri. Á YouTube má sjá hann og heyra fara með […]