Stolen Schubert. Geisladiskur
Ásdís Valdimarsdóttir leikur á víólu tónlist eftir Schubert. Með henni spilar Edward Janning á píanó og Katharine Dain syngur.
Niðurstaða: Einkar vönduð og sannfærandi túlkun á tónlist eftir Schubert.
Franz Schubert var yfirþyrmdur þegar hann hitti átrúnaðargoð sitt, Beethoven. Schubert dáði hann mjög og flúði því æpandi af vettvangi, eða svo er sagt. Beethoven var nokkru eldri, og þegar hann lést var Schubert kyndilberi í jarðarförinni. Hann sjálfur varð ekki gamall, aðeins 31 árs, og er hann fann dauðann nálgast bað hann um að vera jarðaður við hlið meistarans. Honum varð ósk sinni.
Litli sveppur
Mörgum árum síðar voru jarðneskar leyfar tónskáldanna færð á betri stað, og við það tækifæri voru þau rannsökuð. Í ljós kom að höfuðkúpa Beethovens var þykk og sterkleg, en hin fíngerð, nánast eins og í konu. Schubert var ekki hár í loftinu, og var oft kallaður „litli sveppur.“ Heilt yfir er tónlist Schuberts mildari og ljóðrænni en sú sem Beethoven samdi, þó vissulega séu undantekningar. Hún er dásamlega fögur, laglínurnar eru himneskar og flæðið í tónlistinni innblásið og grípandi.
Fyrir skemmstu kom út geisladiskur með Ásdísi Valdimarsdóttur víóluleikara og Edward Janning píanóleikara þar sem þau flytja tónlist eftir Schubert. Nánar tiltekið er það Arpeggione sónatan, nokkrir kaflar úr Vetrarferðinni sem hér er útsett fyrir víólu, og tvö sönglög þar sem Katharine Dain sópran syngur.
Í rétta andanum
Skemmst er frá því að segja að flutningurinn er í hvívetna prýðilegur. Hann er léttur og fíngerður í takt við tónlistina, kraftmikill þegar við á, en samt alltaf tempraður. Heildarmyndin er dálítið innhverf á einhvern sjarmerandi hátt, jafnvel þótt tónlistin sé full af tilfinningum. Enga tilgerð er að finna í túlkuninni, hún er ávallt blátt áfram og heiðarleg. Flutningurinn er alltaf í samræmi við óskir tónskáldsins, ávallt í rétta, rómantíska andanum sem flæðir svo ljúflega.
Schubert samdi himneskar laglínur og hér eru þær mótaðar afskaplega fallega. Schubert samdi alls konar verk, en ljóðasönglögin hans eru í sérflokki. Þau eru um 600 talsins, hann var bókstaflega sísemjandi. Einu sinni samdi hann átta lög á einum sólarhring. Þessi ljóðræna stemning er líka í verkunum fyrir hljóðfæri eingöngu, eins og t.d. á þessari útgáfu. Melódíurnar eru spilaðar þannig að þær eru fullkomlega eðlilegar. Það er eins og þær verði til á því augnabliki sem þær eru leiknar.
Tæknilega séð er leikurinn skýr og jafn, og hendingar fagurlega mótaðar og smekklegar. Söngurinn er jafnframt dásamlegur, kraftmikill og tær. Upptökuhljómurinn er líka mildur og hlýr, sem gefur heildarmyndinni notalega heimilislegan brag. Það er þægilegt að hafa þennan geisladisk á fóninum, líkt og tónlistarfóilkið sé sjálft sé í stofunni að spila fyrir mann og syngja. Þetta er frábært.
Jónas Sen