Endursýning Átta radda

RÚV hefur nýlega hafið endursýningu á sjónvarpsþáttaröð sem ég stjórnaði, Átta röddum.

Þar heimsæki ég átta íslenska söngvara og spjalla við þá um heima og geima. Þættirnir voru frumsýndir 2011. Stjórn upptöku: Jón Egill Bergþórsson.

Fyrsti þátturinn fjallar um Diddú sem byrjaði söngferilinn í Spilverki þjóðanna. Hún færði sig yfir í óperusöng tiltölulega seint en hefur samt aldrei sagt skilið við dægurtónlistina. Lögin sem Diddú flytur í þættinum endurspegla þessa miklu breidd. Í þættinum er fjallað um feril Diddúar, horfnar hetjur af íslensku óperusviði, heyrnarleysi, Jose Carreras, samspil lita og tónlistar, berdreymni og trú.

https://www.ruv.is/sjonvarp/dagskra/ruv/2023-07-18/5317165

Leave a comment