Tónlist fyrir freyðibað

As Time Goes By. Garðar Cortes og Trio Con Fuse. Útg. The Setroc Record Company.

4 stjörnur

Fyrir nokkrum árum kom út geisladiskur með Garðari Cortes og syni hans Garðari Thor þar sem þeir fluttu létt lög. Diskurinn olli vonbrigðum. Ekki þó vegna söngsins, heldur voru útsetningarnar útbólgnar og Disneykenndar. Annað er uppi á teningnum á nýjum geisladiski með Garðari eldri. Þar syngur hann létt lög, m.a. djassstandarda við undirleik Trio Con Fuse (Robert Sund, Bertil Fernquis og Curt Andersson). Garðar syngur af ríkulegri tilfinningu, ekki eins og í óperu, heldur líkt og hann sé staddur í næturklúbbi í Las Vegas klukkan 2 um nóttu. Söngurinn er vissulega vandaður og dálítið skólaður, en hann er líka blátt áfram og dægurlagakenndur.

Útsetningarnar í einföldum djassstíl, það er dinnerbragur á þeim sem er sjarmerandi. Friðrik Karlsson, sá mikli fagmaður, útsetti lögin af frábærri smekkvísi. Hvergi er neinu ofaukið, gítar, píanó og bassi fá að njóta sín í fullkomnum samhljómi. Heildaráferðin er óheft og flæðandi. Hljóðfæratríóið er líka flott, leikurinn er samtaka og líflegur, en ávallt afslappaður.

Þessi geisladiskur er einstaklega skemmtilegur. Það er unaður að hlusta á hann og ég get vel ímyndað mér að hann sé kjörinn til að taka með sér í freyðibað eftir langan vinnudag.

Niðurstaða:

Skemmtilegur diskur, fallega sunginn, prýðilega spilaður, útsettur af fagmennsku.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s