Spilaði af hamsleysi en líka mýkt

Sinfóniuhljómsveitin í Toronto flutti verk eftir Vivier, Rakmaninoff og Tsjajkovskí í Eldborg Hörpu sunnudaginn 24. ágúst.

5 stjörnur

Þegar ég vaknaði daginn eftir tónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar í Toronto ómaði fiðlukonsert Tsjajkovskís enn í höfðinu á mér. Einleikarinn James Ehnes var ótrúlega flinkur, en það var ekki málið. Nei, túlkun hans og hljómsveitarinnar allrar undir stjórn Peter Oundjian var svo áhrifamikil. Hver einasti tónn hafði merkingu, laglínurnar voru fullar af tilfinningu. Stígandin í túlkuninni var þannig að hvergi var dauður punktur. Þetta var stórkostlegur flutningur.

Tæknin hjá bæði einleikara og hljómsveit var óaðfinnanleg, en hún var ávallt í þjónustu innblástursins. Þegar svona framúrskarandi listafólk kemur fram gerir maður ráð fyrir að tæknin sé í lagi. Hún sætir engum sérstökum tíðindum. Ekkert frekar en tæknibrellur í Hollywood stórmynd. Aðalatriðið er að myndin sé skemmtileg. Sömu sögu er að segja um tónlistina.

Fyrir utan fiðlukonsertinn eftir Tsjajkovskí voru tvö önnur verk á efnisskránni. Hið fyrra var Órion eftir kanadíska tónskáldið Claude Vivier (1948-1983). Viver var samkynhneigður og var myrtur af karlkyns hóru í París. Þar með varð tónlistarheimurinn af einstökum hæfileikum, því tónlistin sem hljómaði á tónleikunum var afar seiðandi. Verkið byggðist á laglínu sem innihélt sjö hendingar. Stefið vísaði þannig til stjarnanna sjö sem mynda stjörnumerkið Órion. Tónlistin var full af heillandi blæbrigðum og óvanalegum hljóðfærasamsetningum. Hljómsveitin spilaði hana af afburðum. Fínlegustu litbrigði voru nostursamlega mótuð og háværir kaflar voru í senn þéttir og óheftir. Þvílíkar andstæður!

Sömu sögu er að segja um lokaatriði efnisskrárinnar, Sinfóníska dansa eftir Rakmaninoff. Þetta var myrk tónlist sem byggðist á gríðarlega öflugum andstæðum. Hljómsveitin spilaði hana af hamsleysi þegar við átti, en dásamlegri mýkt inn á milli. Samhljómurinn í sveitinni var breiður og safaríkur, sérstaklega aðdáunarverður var þykkur strengjahljómurinn sem var algerlega frábær. Hljómsveitin var líka svo samtaka, hún spilaði eins og einn maður. Endirinn á verkinu var magnaður, spennuþrunginn og kröftugur.

Sem aukalag lék hljómsveitin marsinn úr Pathetique sinfóníu Tsjakovskís. Það var rúsínan í pylsuendanum – ærandi fjör! Maður hálfpartinn dansaði út úr Hörpunni á eftir.

Niðurstaða:

Með flottustu klassísku tónleikum ársins.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s