Ískaldir fingur djasspíanistans

Hold. Árni Karlsson tríó. Útg. Mold Music

3 stjörnur

Árni Karlsson er framúrskarandi djasspíanóleikari. Hann spilar hér ásamt Þorgrími Jónssyni á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Píanóleikurinn er tær, glitrandi og öruggur. Tímasetningar eru hárnákvæmar, tónahlaupin eru jöfn og óheft, áslátturinn mjúkur og þægilegur áheyrnar. Sömu sögu er að segja um kontrabassaleikinn, sem er skemmtilega líflegur. Trommuleikurinn er líka akkúrat, hóflega afslappaður og svalur.

Öll tónlistin er eftir Árna og hún er einnig útsett af honum. Stemningin er ljúf, samspil hljóðfæraraddanna er fínlega ofið. Þar er hvergi neinu ofaukið, samhljómurinn samsvarar sér prýðilega.

Laglínurnar sjálfar eru þó ekki beint grípandi. Fátt í tónlistinni er virkilega heillandi. Tónlistin er alltaf armslengd í burtu. Lögin virka fyrst og fremst sem bakgrunnstónlist þegar maður vill hafa það huggulegt. Hún er ekkert að trana sér fram, æpir ekki á athygli. Það er því ekki hægt að segja að hún risti djúpt. En stundum er svoleiðis músík engu að síður alveg bráðnauðsynleg.

Niðurstaða:

Áheyrileg, nokkuð kuldaleg djasstónlist, en góð til síns brúks.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s