Hvert lag öðru fegurra

Í ást sólar. Íslensk sönglög flutt af Hallveigu Rúnarsdóttur og Árna Heimi Ingólfssyni. Útg. Smekkleysa

5 stjörnur

Íslensku sönglögin eru gríðarlega mörg, og sum eru snilld. Um það bera vitni óteljandi tónleikar og geisladiskar. Ég held samt að þau hafi sjaldan hljómað eins fallega og á geisladiskinum Í ást sólar með Hallveigu Rúnarsdóttur sópran og Árna Heimi Ingólfssyni píanóleikara.

Tónlistin er óvanalega vel valin. Hvert lag er öðru fallegra. Þarna eru perlur eftir Jón Leifs, m.a. Vögguvísa og Vertu Guð faðir, faðir minn. Einnig eru á diskinum einstaklega skemmtileg lög úr Sjálfstæðu fólki eftir Atla Heimi Sveinsson. Svo er þarna mögnuð tónlist eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Huga Guðmundsson, Hildigunni Rúnarsdóttur og Pál Ísólfsson.

Hallveig syngur af fáheyrðri alúð, næmri tilfinningu fyrir skáldskapnum og af tæknilegum yfirburðum. Söngurinn er bjartur og hreinn, næstum barnslegur. Það er hreinlega unaður að hlusta á hana syngja. Ekki síðri er píanóleikur Árna Heimis. Hann er fagurlega mótaður, mjúkur og dreymandi, en þróttmikill og snarpur þegar við á. Þetta er himneskur geisladiskur.

Niðurstaða:

Lögin eru valin af smekkvísi og flutningurinn er í hæstu hæðum.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s