Mozart gefur heilbrigt og gott útlit og bætir meltinguna

5G er framtíðin, en margir hafa áhyggjur. Alls konar samsæriskenningar hafa skotið upp kollinum í tengslum við 5G og Covid 19, flestar þeirra fjarstæðukenndar. Þær komast þó ekki nálægt hugmyndinni um að tónlist sé vitlaust stillt og hafi verið það í áratugi, bara til að æsa upp almúgann.

Í dag eru tónar stilltir eftir ákveðnu kerfi. Tónninn A sem er staðsettur nánast í miðju hljómborðs á píanói er t.d. 440 rið á sekúndu. Þannig var það ekki alltaf. A var yfirleitt bara 432 rið, og jafnvel neðar. En samsæriskenningasmiðir halda því fram að Jósef Göbbels, áróðursmeistari Þriðja ríkisins, hafi sett lög um hærri stillingu tónlistar, því hann hafi „réttilega“ talið að þannig myndi hún skapa meiri þjóðfélagsóróa og gert fólk móttækilegri fyrir áróðri nasismans.

„Gefur hraustlegt og gott útlit“

Þetta er auðvitað vafasamt, en hver veit? Tónlist hefur áhrif á andlega heilsu, og margt bendir til að hún hafi líka töluvert að segja um þá líkamlegu. Þetta kemur m.a. fram í heilsubloggi Harvardháskóla fyrir nokkrum árum síðan. Þar segir að tónlist geti dregið úr þörf fyrir róandi lyf í aðgerðum á borð við ristilspeglun. Og fólk sem hefur misst málið vegna skaða í vinstra heilahveli – þar sem tungumálastöðin er –  geti öðlast það aftur í gegnum tónlist. Það að syngja á rætur sínar að rekja í hægra heilahvelinu, svo þeir sem þjást af skaða á tungumálastöðinni, geta sungið hugsanir sínar, og smám saman sleppt laglínunni. Þannig ná þeir tökum á tali á ný. Músíkþerapía er greinilega vaxandi fag.

Mozart eykur greind

Aðrar rannsóknir hafa sýnt fram á að tónlist getur hjálpað fólki sem þjáist af heilabilun, Parkinsons og svefnleysi. Róandi klassísk tónlist uppi í rúmi er mun áhrifaríkara svefnlyf en hjóðbók. Ein áhugaverðustu tengsl tónlistar við heilsu eru þó hin svokölluðu Mozart-áhrif. Í ljós hefur komið að þeir sem hlusta á sónötu fyrir tvö píanó í D-dúr K 448 rétt áður en þeir eiga  að leysa ákveðnar heilaþrautir, standa sig betur en aðrir. Vísindarannsóknir hafa líka sýnt fram á að sama sónata, ef hlustað er á hana í um tíu mínútur á kvöldin daglega, leiðréttir tímabundna truflun á rafvirkni heila í flogaveikisjúklingum.

Ein rannsóknin fór svona fram: Ellefu börn þjáð af tegund flogaveiki sem svarar illa lyfjagjöf áttu að hlusta á sónötuna á hverju kvöldi fyrir svefn í sex mánuði. Þau höfðu öll verið veik í a.m.k. ár og fengið minnst tvö flogaveikilyf reglulega. Rafvirkni heila þeirra var mæld hálfu ári áður en rannsóknin fór fram, og svo einu sinni í mánuði þar til henni lauk. Engu var breytt varðandi lyfjagjöf. Eftir rannsóknina voru átta af ellefu börnunum ýmist alveg laus við flog eða höfðu sýnt markverðar framfarir. Hin þrjú börnin þjáðust þó áfram af flogum.

Heilandi endurtekningar

Ekki er ljóst afhverju akkúrat þetta verk hefur svona góð áhrif á heilann. Þar sem tveir píanóleikarar spila á sitthvort píanóið er meira um endurtekningar en gengur og gerist hjá Mozart. Tónlistin er byggð upp eins og samtal, einn píanóleikari setur fram hendingu og hinn svarar með því að endurtaka hana í eilítið öðruvísi samhengi. Ef til vill virka þessar endurtekningar róandi og heilandi. Í öllu falli er þetta skemmtileg tónlist með himneskum laglínum. Í henni er regla og heiðríkja, skýrt form og auðgreind framvinda. Það skeður eitthvað þegar hún er sett á fóninn.

Ég vona svo sannarlega að ný bylgja Covid 19 verði ekki til þess að tónlistarlífið lamist aftur vikum saman. En ef svo skyldi fara er bara að skella sér á Spotify og hlusta á Mozart. Hver veit nema hann styrki ónæmiskerfið, næri og styrki, gefi hraustlegt og gott útlit, og bæti meltinguna; svona eins og Maltöl á víst að gera!

One thought on “Mozart gefur heilbrigt og gott útlit og bætir meltinguna

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s